Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 27. október 2025
Útgáfuhátíð þriggja barnabóka
Karíba Útgáfa, í samstarfi við Menningarmiðstöðina Edinborg, býður ykkur að fagna útgáfu þriggja nýrra bóka sem koma út á þessu ári.
Meira
Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 27. október 2025
Karíba Útgáfa, í samstarfi við Menningarmiðstöðina Edinborg, býður ykkur að fagna útgáfu þriggja nýrra bóka sem koma út á þessu ári.
Ingi Björn Guðnason | þriðjudagurinn 21. október 2025
Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 17. október 2025
Ingi Björn Guðnason | þriðjudagurinn 14. október 2025
Nevermind er önnur plata Nirvana – sú sem skaut sveitinni til heimsfrægðar á einni nóttu. Platan kom út 24. september 1991 og hefur selst í yfir 30 milljón eintökum. Nevermind fékk frábæra dóma og er jafnan ofarlega á listum yfir bestu plötur allra tíma. Nirvana hlaut ýmis verðlaun fyrir þennan stórvirka grip. Rokkmessu sveitin, sem spilaði fyrir troðfullu húsi í Háskólabíó síðla árs í fyrra og fyllti bæði Iðnó í apríl og Græna hattinn í júní, flytur Nevermind lögin ásamt slögurum af Bleach, In Utero og fleira góðgæti.
Ingi Björn Guðnason | fimmtudagurinn 2. október 2025
Laugardaginn 4. október nk. verður Óskar Þór Halldórsson, höfundur nýrrar bókar um svokallaða Akureyrarveiki með kynningu á bók sinni á Patreksfirði og Ísafirði. Kynningin á Patreksfirði verður í Ólafshúsi, Aðalstræti 5, og hefst kl. 11 og á Ísafirði verður kynningin í Edinborgarhúsi kl. 16. Á báðum stöðum segir Óskar Þór frá efni bókarinnar, ekki síst hvernig Akureyrarveikin lék Vestfirðinga grátt.
Ingi Björn Guðnason | fimmtudagurinn 11. september 2025
Ólíkindatólið Tom Waits varð 75 ára síðasta haust og af því tilefni voru haldnir tónleikar honum til heiðurs – sem tókust svo glimrandi vel að hljómsveitin ákvað, eftir ótal áskoranir, að endurtaka leikinn.
Ingi Björn Guðnason | miðvikudagurinn 27. ágúst 2025
Dagana 12.–13. september verður boðið upp á einstaka PAVEMENTS-helgi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og í Ísafjarðarbíói. Tilefnið er Íslands-frumsýning kvikmyndarinnar, PAVEMENTS, sem fjallar á ferskan og óhefðbundinn hátt um hina goðsagnakenndu indie hljómsveit Pavement. Hljómsveitin Reykjavík! kemur fram um helgina og sérstakur gestur verður Bob Nastanovich úr Pavement.
Ingi Björn Guðnason | laugardagurinn 23. ágúst 2025
Kvartett Sunnu Gunnlaugs ásamt Marínu Ósk kemur fram á tónleikum undir yfirskriftinni „Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu“ en það er jafnframt titill hljómplötu sem kom út á síðasta ári. Tónleikarnir fara fram í Bryggjusal Edinborgarhússins og hefjast kl. 20:30.
Ingi Björn Guðnason | laugardagurinn 23. ágúst 2025
Miðvikudaginn 27. ágúst kemur svissneska tríóið Quiet Tree fram á tónleikum í Bryggjusal Edinborgarhússins kl. 20:30.
Ingi Björn Guðnason | þriðjudagurinn 19. ágúst 2025