Samband English
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 23. febrúar 2026

Ný stefna Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar

Stjórn Edinborgarhússins hefur samþykkt nýja stefnu fyrir Menningarmiðstöðina Edinborg, tímabilið 2025–2030, sem markar skýra framtíðarsýn fyrir starfsemi hússins og eflir rekstrargrundvöll þess til lengri tíma. Stefnan byggir á víðtæku samráði við listafólk, notendur hússins, samfélagið og aðra hagaðila, og felur í sér markvissar aðgerðir í viðburðahaldi, listnámi og samstarfi við menningar- og menntastofnanir.


Meira
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 19. desember 2025

Tinna Ólafsdóttir ráðin verkefnastjóri

Tinna Ólafsdóttir tekur til starfa við Edinborgarhúsið í febrúar.
Tinna Ólafsdóttir tekur til starfa við Edinborgarhúsið í febrúar.

Tinna Ólafsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri fræðslu og viðburða hjá Edinborgarhúsinu.

 


Meira
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | mánudagurinn 3. nóvember 2025

Verkefnastjóri fræðslu og viðburða

Menningarmiðstöðin Edinborg á Ísafirði auglýsir starf verkefnastjóra fræðslu og viðburða. Starfið er nýtt og fær verkefnastjórinn rík tækifæri til að þróa í samstarfi við framkvæmdastjóra, stjórn og samstarfsaðila. Við leitum að metnaðarfullum starfsmanni til að ganga til liðs við okkur og taka þátt i fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.


Meira
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | föstudagurinn 15. nóvember 2024

Gjöf í minningu Jóns Sigurpálssonar

Forsvarsfólk Skógar tilkynntu um gjöfina á opnun sýningarinnar Vitar sem sett var upp í Bryggjusal í sumar. Þar gat að líta verk eftir Jón Sigurpálsson sem finna má í almannarými.
Forsvarsfólk Skógar tilkynntu um gjöfina á opnun sýningarinnar Vitar sem sett var upp í Bryggjusal í sumar. Þar gat að líta verk eftir Jón Sigurpálsson sem finna má í almannarými.

Menningarhúsinu Edinborg hefur borist höfðingleg gjöf frá hlutafélaginu Skógi ehf. Félagið er í eigu hjónanna Önnu Kristínar Ásgeirsdóttur og Gísla Jóns Hjaltasonar. Gjöfin er að upphæð 70 milljónir króna og er gefin í minningu Jóns Sigurpálssonar sem lést á síðastliðnu ári, en hefði orðið sjötugur þann 2. ágúst síðastliðinn. Jón var að öðrum ólöstuðum helsti hvatamaður og driffjöður í uppbyggingu hússins og gegndi formennsku í stjórn þess lengst af.

Fjármunir þessir munu verða nýttir, samhliða framlagi ríkis og bæjar, til eflingar starfsemi menningarhússins.

 


Meira
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | miðvikudagurinn 28. september 2022

Aðalfundur Edinborgarhússins

Aðalfundur Edinborgarhússins ehf fyrir árið 2021 verður haldinn í Rögnvaldarsal 11. október 2022, kl. 20:00. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
 
Hlutahafar eru hvattir til að mæta til fundarins.
 
Stjórn Edinborgarhússins.
 
 
 
Ingi Björn Guðnason Ingi Björn Guðnason | miðvikudagurinn 19. maí 2021

Starfskraftur óskast

Menningarmiðstöðin Edinborg óskar eftir starfsmanni í tímabundið starf. Í starfinu felst umsjón með bókunum, viðburðum og útleigu. Einnig er gert ráð fyrir að viðkomandi sinni viðhaldsverkefnum.


Meira
Eldri færslur
© Edinborg Menningarmiðstöð
Merki DressUpGames